ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Guðbjörg vill Sjóvá

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:24 › 11. mars 2010

Guðbjörg Matthíasdóttir, auðkona í Vestmannaeyjum, er á miklu flugi þessa dagana. Hún slapp með undraverðum hætti við hrunið þegar henni tókst að ná milljörðum út úr Glitni örskömmu fyrir fall hans. Þungamiðjan í eigum Guðbjargar er Ísfélagið í Vestmannaeyjum sem að vísu er nokkuð skuldsett. Þá fer hún með stærsta eignarhlutinn í Árvakri, útgáfufélagi Moggans. Þeirri eign fylgir að vísu aðeins byrði ef litið er til reksturs blaðsins. Nú er því fleygt að sendimenn Guðbjargar séu að reyna að kaupa Sjóvá af ríkinu. Ljóst er að veldi athafnakonunnar stefnir í að verða eitt það mesta á Íslandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.