Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Einn kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave skilaði vísukorni í kjörkassann síðastliðinn laugardag, í staðinn fyrir að taka afstöðu til laganna. Segir á ísfirska fréttavefnum Skutli að höfundur vísunnar hafi merkt hana með dulnefninu Auður Auðar.
Segir í vísunni að tilgangur atkvæðagreiðslunnar hafi verið að skera formenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks, Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Bjarna Benediktsson, úr snöru. Vísan er eftirfarandi:
Hvað hefur fólkið á kjörstað að gera,
kjósa um eitthvað sem ekki er til?
Jú, Bjarna og Sigmund úr snöru að skera,
skarfa sem ég hvorki vil eða skil.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Gæðingar Egils
Dýrmæt dóttir
Þrídæmdur
Póstur á vergangi
Björn Ingi frímúrari