Reiður ritstjóri
Þriðjudagur 9. febrúar 2010 kl 09:56
Höfundur: ritstjorn@dv.is
Það vakti þó nokkra athygli á föstudagsmorguninn þegar Sigurjón M. Egilsson fjölmiðlamaður upplýsti að tölvupóstar Jónínu Benediktsdóttur, sem Fréttablaðið birti, hefðu verið keyptir. Sagði Sigurjón að það hefði þó ekki verið hann sjálfur sem fréttastjóri sem keypti heldur þriðji aðili. Þegar fréttavefurinn Pressan innti hann nánar eftir málinu dró Sigurjón í land og taldi líklegt að greitt hefði verið fyrir póstana.
Málið er hins vegar snúið fyrir Jón Kaldal, ritstjóra Fréttablaðsins, sem væntanlega var með í ráðum sem einn yfirmanna Fréttablaðsins þegar Jónínupóstarnir voru keyptir. Fréttablaðið gekk mjög ákveðið fram í máli meints uppljóstrara Milestone og Sjóvár. Var honum lýst sem þjófi í forsíðufrétt blaðsins. Það varð til þess að Jónas Kristjánsson fordæmdi sitt gamla fríblað fyrir að „pönkast“ á litla manninum. Þau skrif trylltu ritstjóra Fréttablaðsins eins og sjá má af einkapósti hans til Jónasar. „Sæll Jónas, hvaða andskotans rugl er að segja að siðvillt Fréttablað pönkist á meintum þjófi Milestonegagna...?“








