Forseti í skotlínu
Þriðjudagur 9. febrúar 2010 kl 06:07
Höfundur: ritstjorn@dv.is
Þverpólitísk samstaða er að myndast um að semja við Breta og Hollendinga um IceSave og forðast þannig að láta þjóðaratkvæðagreiðslu fara fram með tilheyrandi sigri Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands.
Sjálfstæðismenn fögnuðu gríðarlega þegar forsetinn synjaði IceSave-lögunum staðfestingar. Síðar fóru að renna á Bjarna Benediktsson og félaga tvær grímur. Flokkurinn hefur í gegnum tíðina verið algjörlega andvígur þeirri túlkun að forsetinn hefði vald til að synja lögum staðfestingar. Nú þykir einsýnt að fari þjóðaratkvæðið fram skapist fordæmi og það með blessun Sjálfstæðisflokksins.
Nú er fléttan sú að hrifsa af forsetanum þetta tækifæri til að þvo af sér útrásarstimpilinn. Jafnframt er líklegt að bæði stjórn og stjórnarandstaða gangi sameinuð til þess verks að breyta eðli forsetaembættisins. Hörðustu stuðningsmenn forsetans í stjórnarskrárnefndinni voru Steingrímur J. Sigfússon og Össur Skarphéðinsson. Þeim er nú ósárt um að koma forsetanum út í kuldann.







