ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Hamingja á svæðisútvarpi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:15 › 8. febrúar 2010

Yfirmenn RÚV hafa boðað til fundar í Borgarnesi næstkomandi föstudag um framtíð svæðisstöðvanna sem rækilega voru skornar niður á dögunum gegn mótmælum úr öllum landsfjórðungum.

Öllum að óvörum er nú boðað aukið hlutverk svæðisstöðvanna í dagskrá Ríkisútvarpsins og ætlar Óðinn Jónsson fréttastjóri að flytja fundargestum boðskap um nýtt hlutverk þeirra í dagskránni.
Á fundinum verður einnig boðið upp á skyndinámskeið í myndatökum og klippingum og aukinn hlut sjónvarpsfréttamanna í fréttavinnslunni. Þetta verður undir leiðsögn Gísla Einarssonar sem jafnvígur er á alla hluti.

Sællar minningar var tilraun af þessum toga gerð á NFS stöðinni án mikils árangurs og allt fór það í vaskinn.
Yfirskrift skyndnámskeiðsins fyrir fréttamenn undir meira álagi er: „Sjálfbjarga er sjónvarpsfréttamaðurinn hamingjusamur.“
Senn rís hamingjustuðulinn á RÚV.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.