ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

Pönkast á Jónínu Ben

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:58 › 8. febrúar 2010

Sómakonan Jónína Benediktsdóttir er nýjasta fórnarlamb AMX. Á vefnum er því haldið fram fullum fetum að heilsufrömuðurinn kaupi auglýsingar í DV til að sleppa við umfjöllun. Jónína hefur setið á friðarstóli og sinnt rekstri Detox-stöðva sinnan af alúð eftir að hafa gengið í gegnum erfiða umfjöllun vegna svonefnds tölvupóstamáls í Fréttablaðinu. Ekki er vitað til þess að hún hafi neitt sérstakt að fela sem ekki þoli dagsbirtu. Þykir þessi umfjöllun því óvenju rætin í garð Jónínu en jafnframt lipurlega skrifuð, með sérlega nákvæmri notkun greinarmerkja. Eftir að Jónas Haraldsson og Óli Björn Kárason hættu störfum á AMX tók nýr aðili við ritstjórninni en sá þykir ,,vart sendibréfsfær".
Stílfræðingar giska á að Björn Bjarnason og jafnvel Styrmir Gunnarsson sjái nú um fuglahvíslið á vefnum og séu því að pönkast á Jónínu. Þetta er þó með öllu ábyrgðarlaus ágiskun.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.