ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

IceSave-drottning á þing

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
00:12 › 3. febrúar 2010

Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, Erla Ósk Ásgeirsdóttir, hefur tekið sæti á Alþingi. Erla þykir vera afar frambærileg en fortíðin þvælist nokkuð fyrir. Hún var hluti af öflugri markaðsdeild gamla Landsbankans sem hafði meðal annars það hlutverk að sannfæra Breta og Hollendinga um að leggja sparifé sitt inn á IceSave-reikninga. Sú snjalla markaðssetning hefur þegar orðið þjóðinni dýr. DV-bloggarinn Teitur Atlason fjallar um málið og botnar ekkert í því að hún skuli sitja á þingi. Og það eru fleiri á sömu skoðun því stofnuð hefur verið Facebook-grúppa gegn þingsetu hennar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.