ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Helgi með lánabók Landsbankans

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:30 › 11. febrúar 2010

Helgi Seljan, fréttamaður Kastljóss, hefur farið mikinn undanfarin kvöld þar sem hann hefur rakið botnlausar afskriftir og skuldir Icelandic Group, Brims og fleiri félaga. Þessar upplýsingar eru komnar úr lánabók Landsbankans frá árinu 2008. Samkvæmt frétt Helga í kvöld er Brim, sem er í aðaleigu Guðmundar Kristjánssonar, við það að vera gjaldþrota. Sama er uppi á teningnum varðandi Hraðfrystihúsið Gunnvöru á Ísafirði sem berst við milljarðaskuldir. Víst er að óvinum Helga Seljan fjölgar hratt eftir því sem hann plokkar fleiri skandala upp úr lánabókinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.