Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
10:03 › 26. janúar 2010
Sexmenningarnir sem risu upp gegn Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni og Birni Inga Hrafnssyni og kröfðust þess að REI yrði selt strax komu flestir vel út úr prófkjöri Sjálfstæðisflokksins um helgina.
Fimm þeirra röðuðu sér í fimm efstu sætin en Jórunn Frímannsdóttir varð hins vegar að sætta sig við áttunda sætið. Það er sæti sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki hreppt í höfuðborginni síðan í kosningunum 1990. Spurning hvort það verði breyting á því nú. Sennilega er full þörf á því flestir virðast ganga að því sem vísu að Einar Skúlason leiði Framsókn frekar til vinstri en hægri eftir kosningar.

Hemmi Gunn fallinn frá