Bubbi og völvan

Laugardagur 16. janúar 2010 kl 21:20

Höfundur: ritstjorn@dv.is

Lag Bubba Morthens og Óskars Páls Sveinssonar, One more day, komst áfram í undankeppni Evróvisjón. Þar með aukast líkur á því að spádömur völvu DV frá því í síðasta mánuði um Bubba rætist.
Völvan spáði því hiklaust og ákveðið að Bubbi myndi sigra í Evróvisjón og lag hans yrði flutt sem framlag Íslands í Osló í vor. Til viðbótar sagði hún að kóngurinn yrði með stórar yfirlýsingar sem myndu vekja mikla athygli.


ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.