Grein Björgvins G. Sigurðssonar á Pressubloggi hans um persónulegar árásir á hann úr netheimum hefur ekki skilað honum samúð. Umræðan hefur þvert á móti snúist gegn honum og í bloggheimum hellast yfir hann ásakanir um ábyrgð hans á hruninu. Fæstir höfðu heyrt af meintum drykkjuskap hans eða framhjáhaldi. Þykir sýnt að Björgvin hafi ekki aðgang að góðum ráðgjöfum í almannatengslum sem örugglega hefðu sagt honum að halda kyrru fyrir í stað þess að berjast við vindmyllur. Þá þykir ekki trúverðugt að Björgvin skuli ætla að beita sér af alefli fyrir löggjöf til að koma böndum á nafnleysingja. Menn skyldu ætla að Björgvin ætti að nota alefli sitt til að berjast fyrir upprisu Íslands. Hann situr uppi með að hafa gengisfallið við grein sína.
Sandkorn
Björgvin G. gengisfellur
Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Náhirð með Ara
Ríkisstyrkt flopp
Davíð snupraður
Eldhuginn hjá Gunnvöru
Dylgjað um Döllu
