ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Guðfræðinemi grætir þingmann

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:12 › 6. september 2009

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur haldið uppi andófi gegn nafnlausum hýenum bloggsins undanfarin misseri. Nú hefur Tryggvi tekið baráttuna upp á annað plan og krefst þess að ritstjóri Eyjunnar, þar sem hann bloggar sjálfur, veiti öðrum Eyjubloggara, Teiti Atlasyni, tiltal vegna orðavals hans. Teitur, sem eitt sinn var þekktur sem guðfræðinemi, þykir einkar beittur á bloggi sínu. Það sem grætir þingmanninn er þessi einkunn um hann sjálfan: ,,Hann er vindbelgur, flautaþyrill og froðusnakkur". Ekki er ljóst hvað ritstjóri Eyjunnar hyggst gera en hann er einn helsti hýsill hinna nafnlausu rógbera á blogginu.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?