Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Davíð Oddsson er sem kunnugt er orðinn ritstjóri Morgunblaðsins, blaðsins sem hann vann hjá um stund sem ungur maður. Þá sá hann um stjórnmálafréttir en núna um leiðaraskrif og stjórn blaðsins.
Gárungarnir rifja hins vegar upp að Davíð var einhvern tímann ekki talinn áhugasamasti maðurinn um tölvur og lítið fyrir að senda tölvupósta. Þeir telja því sumir að kannski sé nú við hæfi að Davíð taki gamlan félaga sinn úr ríkisstjórnum, Guðna Ágústsson, sér til fyrirmyndar og fari með honum á tölvunámskeið. Aðrir benda hins vegar á að Davíð hafi að einhverju leyti tekið tölvutæknina í sína þágu og spili stundum bridds á netinu. Enn ein leiðin er sú að hann viðhaldi vankunnáttu sinni og fá einkaritara við hlið sér.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Náhirð með Ara
Ríkisstyrkt flopp
Davíð snupraður
Eldhuginn hjá Gunnvöru
Dylgjað um Döllu
