Einn aðalsölumaður og hugmyndafræðingur Landsbankans varðandi IceSave, Þórlindur Kjartansson, gagnrýnir Jóhönnu Sigurðardóttur harðlega fyrir frammistöðuna við að hreinsa upp eigin ófögnuð. Telur Þórlindur að ríkisstjórnin hafi gert slæma samninga og það skorti á samráð.
Þetta kom fram í viðtali við hann í þjóðmálaþættinum á Sprengisandi. Þórlindur, sem hætti í bankanum eftir hrun og bauð sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn, býr að yfirburðaþekkingu á IceSave eftir að hafa verið náinn samstarfsmaður Sigurjóns Árnasonar bankastjóra og að hafa staðið í fararbroddi við markaðssetningu. Hann var ekki spurður um þá aðild sína í þættinum en talaði um að nú stæði til að ,,velta gríðarlegum skuldabagga á litla þjóð". Einhver kynni að spyrja hver væri sökudólgur í þeim efnum og hver ekki.
Sandkorn
Sölumaður IceSave gagnrýnir Jóhönnu
Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Náhirð með Ara
Ríkisstyrkt flopp
Davíð snupraður
Eldhuginn hjá Gunnvöru
Dylgjað um Döllu
