Myndband lýsir drukknum þingmanni

Sunnudagur 23. ágúst 2009 kl 12:57

Höfundur: ritstjorn@dv.is

Myndband á Youtube með Sigmundi Erni Rúnarssyni að kvöldlagi í þinginu gengur nú ljósum logum um Netið. Myndbandið er frá umræðum þar sem þingmaðurinn mundi ekki spurningar sem beint var til hans en fór samt í pontu til að standa á gati. Myndbandið, sem ber titilinn ,,Fjör á Ölþingi" er samsett og sýnir þingmanninn í vægast sagt vandræðalegu ljósi. Sjálfstæðismenn hafa sérstaklega haldið myndbandinu á lofti og sumir þeirra sett inn á heimasíður sínar. http://www.youtube.com/watch?v=Q0--r8ZiH0k


ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.