Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur undanfarin misseri fundað með fjölda fólks um allt land og þannig reynt að blása bjartsýni í þjóðina. Þá hefur tilgangurinn væntanlega einnig verið sá að byggja að nýju upp traust á milli sín og fólksins í landinu. Það er eimitt í slíkri ferð á Norðurlandi að forsetinn slasaðist. Það vekur hins vegar athygli að forsetinn heldur sig fjarri kastljósi fjölmiðlanna með fundarherferð sína og einnig slysið. Það bendir til þess að hann telji skynsamlegt að fara með löndum á meðan mesta óánægjan varir með meint útrásardekur hans. Hann hafi meðvitað ákveðið að halda fundina í kyrrþey.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Náhirð með Ara
Ríkisstyrkt flopp
Davíð snupraður
Eldhuginn hjá Gunnvöru
Dylgjað um Döllu
