ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Metnaðarleysi Moggans

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:27 › 25. nóvember 2009

Orðið á götunni vakti athygli á því í gær að á velgengnistíma Morgunblaðsins þá hafi blaðið notið þeirrar sérstöðu meðal íslenskra fjölmiðla að það gat náð sambandi við alla þá sem það vildi tala við um fréttamál.

Morgunblaðið hefur nú annan daginn í röð sagt frá því að ítrekað hafi verið reynt að ná í Finn Sveinbjörnsson, bankastjóra Arion banka og Jóhannes Jónsson, kaupmann. DV náði sambandi við þá báða í gær í fyrstu tilraun og því má telja það afar ólíklegt að Morgunblaðið hafi gert ítrekaðar tilraunir í marga daga við á ná tali af þeim félögum.

Annað hvort kunna blaðamenn Morgunblaðsins ekki að slá inn tölur á símanna eða þeir hafa einfaldlega ekki nennt að hringja í þá félaga. Enda hljómar það miklu betur að það hafi verið gerðar ítrekaðar tilraunir við að ná tali af viðmælendum.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?