ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Lesendur flýja Davíð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:33 › 10. nóvember 2009

Lestarkönnun Capasent leiðir í ljós mikið brottfall lesenda Moggans í tíð ritstjóranna Davíð Oddssonar og Haraldar Johannesen. Fallið er 10 prósent á milli ára. Meðaltalslestur á Mogganum mældist 37,3 prósent á tímabilinu 9. ágúst til 9. október. Á sama tíma í fyrra þegar Ólafur Stephensen stýrði blaðinu lásu það rúmlega 40 prósent. Eftir eiga að koma fram í mælingum fjöldauppsagnir áskrifenda en könnun Háskólans á Bifröst gerir ráð fyrir að yfir 10 þúsund manns hafi sqagt upp blaðinu vegna nýs ritstjóra. Þeir fengu þó blaðið áfram frítt í október en könnunin nær til 9. þess mánaðar. Könnunin er einn eitt áfallið fyrir eigendur og lánadrottna Moggans. Á sama tíma lásu tæplega 60 prósent landsmanna Fréttablaðið sem ber höfuð og herðar yfir samkeppnisaðilann.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.