ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Lélegur spunameistari

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:40 › 17. september 2008

Viðbrögð Ólafs Teits Guðnasonar, fjölmiðlafulltrúa almenningsfyrirtækisins Straums-Burðaráss, við spurningum DV um glæsiveislu sem bankinn hélt í Tékklandi vöktu mikla athygli.

Fjölmiðlafulltrúinn varð sem snúið roð í hundskjaft við spurningar blaðamannsins og hreytti út úr sér ónotum um að engum kæmi við sá flottræfilsháttur sem spurt var um. Þetta þykir dæmi um að hann sé með afbrigðum lélegur spunameistari.

Á meðan bankinn er í ólgusjó og glímir við himinhátt tap hefur fjölmiðlafulltrúinn ekkert að segja til að lina þjáningarnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.