ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Sægreifar vilja Mogga

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:26 › 1. desember 2008

Altalað er að nú sé að myndast hópur fimm aðila sem vilji leggja milljarð króna í að kaupa Moggann án prentsmiðjunnar. Þessir aðilar eru: Hluti Engeyjarættarinnar, Vestmannaeyjafjölskyldan sem kennd er við Sigurð heitinn Einarsson, Árni Hauksson og Hallbjörn Karlsson sem auðguðust á kaupum Húsasmiðjunnar og sölu, Elvar Aðalsteinsson, barnabarn Alla ríka og aðilar honum tengdir og loks lykilstarfsmenn og stjórnendur Morgunblaðsins, jafnvel með Valtýsfjölskyldu. Stór hluti hópsins er fólk sem auðgaðist á kvótakerfinu eða svonefndir sægreifar. Flestir þessarra aðila eru andvígir aðild að ESB og þannig í andstöðu við stefnu ritstjóra Morgunblaðsins, Ólafs Stephensen, en á sömu línu og Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.