ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Gunnar Smári vill Viðskiptablaðið

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:15 › 17. nóvember 2008

Rekstur Viðskiptablaðins er snúinn þessa dagana. Þótt daglegri útgáfu hafi verið hætt er óvissa um framhald á helgarútgáfu þess undir stjórn núverandi eigenda. En það kann að vera ljós í myrkrinu því hermt er að fjölmiðlamógúllinn Gunnar Smári Egilsson, sem býr að mikilli en sárri reynslu af rekstri fjölmiðla, hafi hug á að kaupa blaðið með manni og mús. Líklegt er að Mikael Torfason rithöfundur fylgi sínum gamla fóstra en þeir hafa undanfarið verið óaðskiljanlegir. Það gæti því farið svo að þeir yrðu ritstjórar á Viðskiptablaðinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.