Nú í vikulok sendir hljómsveitin Atomstation frá sér smáskífuna Let it Die af væntanlegri breiðskífu sveitarinnar sem hlotið hefur nafnið Bash. Atomstation leikur tónleika á Gauknum ásamt Keelrider á kvöld til að fagna útgáfu smáskífunnar auk þess sem hún kemur fram á Bræðslunni á Borgarfirði Eystri í lok júlí.
„Við vonumst eftir partívænni mætingu á Gaukinn og hlökkum til að spila með Keelrider í fyrsta skipti. Nýja lagið okkar Let it Die er að lenda á helstu netveitum og útvarpsstöðvum þessa daganna, er þegar komið á spotify, og ætlum við að fagna því sérstaklega á tónleikunum. Lagið fjallar um að gangast ekki við tilfinningum sínum, sterkum sem veikum og er samið í tengslum við sviplegt og óvænt sjálfsvíg. Við fengum fjöllistakonuna Sunnevu Ásu Weishappel til liðs við okkur og sá hún um plötuumslagið. Tónleikarnir byrja annars klukkan 22 á Gauknum og verður aðgangur ókeypis.“ segir Guðmundur Ingi, söngvari Atomstation.
Bash er þriðja breiðskífa Atomstation og er hún tekin upp í Los Angeles af Scott Hackwith sem meðal annars hefur unnið með Iggy Pop og the Ramones.
„Þetta er allt bara á loka metrunum núna. Platan er bara í hljóðblöndun þessa daganna og verið að útfæra umslagið og slíkt. Þetta ætti því að hafast fljótlega.“ segir Guðmundur.