Spilliforrit hefur fundist í leikfangaúrunum SpyNet með myndbandsupptöku og snertiskjá frá fyrirtækinu JAKKS Pacific. Þetta kemur fram í tilkynningu frá JAKKS sem send er í varúðarskyni til neytenda.
Þar segir að spilliforritið muni ekki sýkja tölvur sem nota nýrri útgáfur af Windows, 7, 8 og 10, eða önnur stýrikerfi, á borð við Linux eða MacOS.
„Umrætt spilliforrit er vírus af eldri gerð sem getur aðeins sýkt tölvur sem nota eldri útgáfur af Windows, þá einkum Windows XP. Frá október 2016 hafa viðskiptavinir keypt um það bil 6.500 slík úr á Norðurlöndunum, einkum í verslunum BR og TOYS”R”US,“ segir í tilkynningunni.
Þá eru neytendur sem hafa keypt Spy Net-úr með myndbandsupptöku og snertiskjá (með strikamerkinu 39897093833) og eiga tölvu með stýrikerfi sem er óvarið gegn þessu spilliforriti, hvattir til að hafa samband á netfangið customerservice@toysrus.is til að fá nauðsynlegar leiðbeiningar.
„Þér er einnig velkomið að koma með vöruna aftur í verslunina þar sem hún var keypt og fá hana endurgreidda. Þessar upplýsingar hafa verið unnar í samræmi við upplýsingar frá dönskum yfirvöldum á sviði tæknilegs öryggis.“