Tuttugu flugfélög munu bjóða uppá áætlunarflug frá Keflavík í sumar
Aðeins þrjú flugfélög af tuttugu sem bjóða upp á áætlunarferðir frá Keflavíkurflugvelli í sumar rukka ekki aukalega fyrir farangur og sætisval. Túristi.is greinir frá.
Oftar en ekki hækkar auglýst verð flugfélaganna þegar farþegar ákveða að velja sér sæti, taka með sér farangur eða greiða með kreditkorti. Þau flugfélög sem ekki rukka aukalega fyrir farangur og sætisval eru Icelandair, Air Greenland og Delta.
Að sögn Túrista virðist sem slík aukagjöld séu að færast í vöxt á meðal flugfélaga og ekki séu aðeins lággjaldaflugfélög sem noti slíkt fyrirkomulag. Í úttekt Túrista segir að verð séu mjög breytileg á milli flugfélaga.
WOW air og ungverska flugfélagið Wizz Air eru einu flugfélögin sem rukka fyrir handfarangur. Sömuleiðis er Wizz Air eina flugfélagið sem rukkar fyrir innritun, þó það sé frítt að innrita sig á Internetinu.