fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Neytendur

„Þetta er alveg eins og fiskur“

Páskaeggið frá Nóa Síríus var best að mati barnadómnefndar DV – Lakkrísinn og rísinn alltaf umdeildur

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 23. mars 2016 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta er alveg eins og fiskur,“ sagði Ingibjörg Kristjánsdóttir um eitt af þeim páskaeggjum sem henni bauðst að smakka á árlegri páskaeggjasmökkun barnanna hér á DV. Móðir Ingibjargar benti reyndar á að Ingibjörgu fyndist fiskur bara ágætur svo það ætti ekki að taka dómi hennar sem lasti.

DV boðaði til sín fimm börn á aldrinum fimm til þrettán ára til að taka þátt í páskaeggjasmökkun. Að þessu sinni brögðuðu börnin á 12 ólíkum páskaeggjum frá þremur framleiðendum, Góu, Freyju og Nóa Síríus. Úrvalið af páskaeggjum þetta árið er umtalsvert eins og á liðnum árum, en tekin var sú ákvörðun að biðja börnin um að segja álit sitt á hreinum súkkulaðieggjum frá öllum framleiðendum, lakkríseggjum frá öllum framleiðendum og svo sérstökum eggjum, einu frá hverjum framleiðanda.

Vert er að benda á að eldri dómnefnd kvað einnig upp dóm sinn í helgarblaði DV en þar reyndist dómnefndin, sem skipuð var erlendum skákmönnum, kunna best að meta páskaeggið frá Nóa Síríus.
Börnin voru óneitanlega bæði einlægari og óheflaðri í dómum sínum en skákmeistararnir. En barnadómnefndin var þó hjartanlega sammála erlendu dómnefndinni. Eggið frá Nóa Síríus reyndist vera það sem var hvað óumdeildast hjá börnunum sem sögðu það vera bragðgott, með sætu eftirbragði.

Skemmtileg vinna

Smökkunin fór þannig fram að börnin smökkuðu bara súkkulaðieggin. Sælgætið og umbúðir voru fjarlægðar og eggin sett á diskar og skálar. Þau fengu svo brot til að smakka og þess var gætt að ef súkkulaðið var til dæmis með lakkrís, þá fengju börnin bita með lakkrís. Börnin sögðu svo skoðun sína og skrifuðu hana ýmist sjálf niður eða fengu aðstoð fullorðinna aðstoðarmanna sem fengu sjálfir ekki að smakka eggin fyrr en eftir að börnin höfðu kveðið upp dóm sinn. Þetta var mikið þrekvirki, enda ekkert grín að smakka tólf páskaegg, en þau stóðu sig með mikilli prýði og kann DV þeim bestu þakkir.

Dómnefndina skipuðu systurnar Ingibjörg og Lára Daníela Kristjánsdætur. Lára Daníela er sex ára en Ingibjörg er níu ára. Þær eru báðar í Háaleitisskóla, Sara Sigurvinsdóttir, 5 ára, í leikskólanum Grandaborg, Ísarr Logi Arnarsson, 6 ára, í Foldaskóla og Jóhann Ægir Arnarsson, 13 ára nemandi í Víðistaðaskóla. Jóhann Ægir var aldursforseti og því formaður dómnefndar. Honum fannst Draumaeggið frá Freyju langbest og sagði: „Mjög gott – bara fullkomið.“ Hann benti einnig á að það væri nú ekki leiðinleg vinna að fá að smakka páskaegg og eflaust eftirsóknarvert að fá fastráðningu við slíkt.

Lakkrísinn alltaf umdeildur

Eins og undanfarin ár voru lakkríseggin umdeild. Börnunum bar alls ekki saman um ágæti þeirra. Láru Daníelu fannst hreint út sagt skelfileg lífsreynsla að vera látin bragða þau, en Söru og Jóhanni Ægi fannst þau alveg sérstaklega góð. „Mér fannst þetta ekki gott, ég fann lakkrísbragð,“ sagði Lára og gretti sig ógurlega þegar hún smakkaði eitt lakkríseggjanna. Söru fannst hins vegar lakkríseggin upp til hópa afskaplega góð. „Ég veit hvað mér finnst best við þetta og það er lakkrísinn, mjög, mjög gott,“ sagði hún um Góu Appolo-eggið. Ísari Loga fannst svo Nóa Lakkríseggið vera best af þeim öllum.

Klofnaði

Dómnefnd barnanna klofnaði einnig þegar kom að eggjum með hrísi eða kexi. Söru fannst eggin sem voru með Hrauni, Nóa kroppi og Ríseggið ekki góð. „Mér finnst svona kex ekki gott,“ sagði hún ákveðin. Jóhanni Ægi fannst þó Nóa Kroppseggið bæði vera góð blanda af rís og súkkulaði. Lára Daníela lá ekki á skoðunum sínum og var sammála Jóhanni Ægi, en Freyju Ríseggið átti ekki upp á pallborðið hjá henni. „Ojj, ógeðslegt bragð,“ sagði hún.

„Þetta er gott“

Sem áður sagði var það venjulega páskaeggið frá Nóa Síríus sem var óumdeilt hjá dómnefndinni. Hún var hins vegar ekki sammála um önnur hrein egg. Söru fannst til dæmis venjulegt páskaegg frá Góu alveg ljómandi gott, en Láru Daníelu fannst það mjög vont. Öllum nema Ísari Loga fannst hreina eggið frá Freyju afar slæmt, en hann sagði einfaldlega: „Þetta er gott.“

Frekar ósammála

Þar sem dómnefndin var ósammála í næstum öllum atriðum tók blaðamaður ákvörðun um að raða eggjunum ekki upp í neina ákveðna röð eftir styrkleika, en þeir sem eru áhugasamir um hreinskiptna dóma barnanna geta lesið þá óritskoðaða hér til hliðar, en börnin segja venju samkvæmt nákvæmlega það sem þeim finnst.

Lára Daníela: „Ekki gott – ógeðslegt bragð.“Ingibjörg: „Gott.“Jóhann Ægir: „Svolítið þykkt – of sætt.“Sara: „Gott, það er smá ísbragð að þessu.“Ísarr Logi: „Ekki gott.“
Góa hreint Lára Daníela: „Ekki gott – ógeðslegt bragð.“Ingibjörg: „Gott.“Jóhann Ægir: „Svolítið þykkt – of sætt.“Sara: „Gott, það er smá ísbragð að þessu.“Ísarr Logi: „Ekki gott.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Lára Daníela: „Ekki gott, vil ekki lakkrís og það er skrítið bragð.“Ingibjörg: „Rosavont.“Jóhann Ægir: „Þykkt og mikið lakkrísbragð.“Sara: „Ég veit hvað mér finnst best við þetta og það er lakkrísinn. Mjög, mjög gott.“Ísarr Logi: „Ekki gott – verst af öllum.“
Góa Appoloegg Lára Daníela: „Ekki gott, vil ekki lakkrís og það er skrítið bragð.“Ingibjörg: „Rosavont.“Jóhann Ægir: „Þykkt og mikið lakkrísbragð.“Sara: „Ég veit hvað mér finnst best við þetta og það er lakkrísinn. Mjög, mjög gott.“Ísarr Logi: „Ekki gott – verst af öllum.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Lára Daníela: „Ekki gott, ógeðslegt bragð.“Ingibjörg: „Rosavont.“Jóhann Ægir: „Marsípan og lakkrís!!! Nammi gott.“Sara: „Ágætt, en venjulegi lakkísinn er betri.“Ísarr Logi: „Svolítið gott.“
Góa Appolo fylltar Lára Daníela: „Ekki gott, ógeðslegt bragð.“Ingibjörg: „Rosavont.“Jóhann Ægir: „Marsípan og lakkrís!!! Nammi gott.“Sara: „Ágætt, en venjulegi lakkísinn er betri.“Ísarr Logi: „Svolítið gott.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Lára Daníela: „Þumall upp.“Ingibjörg: „Ágætt.“Jóhann Ægir: „Lítið og þurrt bragð.“Sara: „Ekki gott, kexið vont.“Ísarr Logi: „Ekkert rosalega gott.“
Góa Hraun Lára Daníela: „Þumall upp.“Ingibjörg: „Ágætt.“Jóhann Ægir: „Lítið og þurrt bragð.“Sara: „Ekki gott, kexið vont.“Ísarr Logi: „Ekkert rosalega gott.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Lára Daníela: „Ekki gott, þumall niður.“Ingibjörg: „Gott.“Jóhann Ægir: „Svakalega gott og gott eftirbragð.“Sara: „Hlýtur að vera gott – en smá vonbrigði.“Ísarr Logi: „Þetta er gott.“
Freyja Ævintýraegg Lára Daníela: „Ekki gott, þumall niður.“Ingibjörg: „Gott.“Jóhann Ægir: „Svakalega gott og gott eftirbragð.“Sara: „Hlýtur að vera gott – en smá vonbrigði.“Ísarr Logi: „Þetta er gott.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Lára Daníela: „Skrítið bragð.“Ingibjörg: „Skrítið.“Jóhann Ægir: Mjög gott – bara fullkomið.“Sara: „Mjög, mjög gott – lakkrísinn æðislegur.“Ísarr Logi: „Ekki gott.“
Freyja Draumur – Lakkrísegg Lára Daníela: „Skrítið bragð.“Ingibjörg: „Skrítið.“Jóhann Ægir: Mjög gott – bara fullkomið.“Sara: „Mjög, mjög gott – lakkrísinn æðislegur.“Ísarr Logi: „Ekki gott.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Lára Daníela: „Alveg hræðilegt bragð.“Ingibjörg: „Alveg eins og fiskur.“Jóhann Ægir: „Lítið bragð og sætt eftirbragð.“Sara: „Ekki gott bragð – það er ekkert inni í.“Ísarr Logi: „Þetta er gott.“
Freyja hreint Lára Daníela: „Alveg hræðilegt bragð.“Ingibjörg: „Alveg eins og fiskur.“Jóhann Ægir: „Lítið bragð og sætt eftirbragð.“Sara: „Ekki gott bragð – það er ekkert inni í.“Ísarr Logi: „Þetta er gott.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Lára Daníela: „Ojj, ógeðslegt bragð.“Ingibjörg: „Ágætt.“Jóhann Ægir: „Mjög gott, mátulega sætt.“Sara: „Blómið á egginu rosafallegt en ekki gott páskaegg. Mér finnst svona kex ekki gott.“Ísarr Logi: „Ekki gott.“
Freyja Rísegg Lára Daníela: „Ojj, ógeðslegt bragð.“Ingibjörg: „Ágætt.“Jóhann Ægir: „Mjög gott, mátulega sætt.“Sara: „Blómið á egginu rosafallegt en ekki gott páskaegg. Mér finnst svona kex ekki gott.“Ísarr Logi: „Ekki gott.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Lára Daníela: „Þumall upp, mjög, mjög mjög gott. Hrísinn góður.“Ingibjörg: „Ágætt.“Jóhann Ægir: „Góð blanda rís og súkkulaðiegg og gott bragð.“Sara: „Þetta græna er ekki gott.“Ísarr Logi: „Þetta er gott.“
Nóa Kropp Lára Daníela: „Þumall upp, mjög, mjög mjög gott. Hrísinn góður.“Ingibjörg: „Ágætt.“Jóhann Ægir: „Góð blanda rís og súkkulaðiegg og gott bragð.“Sara: „Þetta græna er ekki gott.“Ísarr Logi: „Þetta er gott.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Lára Daníela: „Ekki gott, eitthvað í því.“Ingibjörg: „Rosa gott.“Jóhann Ægir: „Góð blanda af svona svona keim af karamellu en svolítið sætt.“Sara: „Svakalega gott! Karamellan inni í er mjög, mjög góð.“Ísarr Logi: „Ekki gott.“
Nóa karamelluegg Lára Daníela: „Ekki gott, eitthvað í því.“Ingibjörg: „Rosa gott.“Jóhann Ægir: „Góð blanda af svona svona keim af karamellu en svolítið sætt.“Sara: „Svakalega gott! Karamellan inni í er mjög, mjög góð.“Ísarr Logi: „Ekki gott.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Lára Daníela: „Gott súkkulaðibragð.“Ingibjörg: „Gott.“Jóhann Ægir: „Gott bragð og var mjög gott, svolítið sætt eftirbragð.“Sara: „Gott, öðruvísi súkkulaði.“Ísarr Logi: „Svolítið gott.“
Nóa Síríus egg Lára Daníela: „Gott súkkulaðibragð.“Ingibjörg: „Gott.“Jóhann Ægir: „Gott bragð og var mjög gott, svolítið sætt eftirbragð.“Sara: „Gott, öðruvísi súkkulaði.“Ísarr Logi: „Svolítið gott.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Lára Daníela: „Ekki gott – fann lakkrís.“Ingibjörg: „Gott.“Jóhann Ægir: „Mjög gott, bragðgott og gott eftirbragð.“Sara: „Gott – hvaða merki er þetta? Bestur fannst mér lakkrísinn. Mjög, mjög gott.“Ísarr Logi: „Rosagott – best af öllum.“
Nóa Lakkrísegg Lára Daníela: „Ekki gott – fann lakkrís.“Ingibjörg: „Gott.“Jóhann Ægir: „Mjög gott, bragðgott og gott eftirbragð.“Sara: „Gott – hvaða merki er þetta? Bestur fannst mér lakkrísinn. Mjög, mjög gott.“Ísarr Logi: „Rosagott – best af öllum.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanNeytendur
24.04.2020

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19
EyjanNeytendur
12.04.2020

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“
Neytendur
09.02.2020

Hvað er málið með örorkubætur?

Hvað er málið með örorkubætur?
Neytendur
02.02.2020

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár
EyjanNeytendur
23.07.2019

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“
EyjanNeytendur
01.07.2019

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“
EyjanNeytendur
06.05.2019

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn
EyjanNeytendur
02.05.2019

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“