Ekki hægt að sýna fram á öryggi leikfanganna
Neytendastofa hefur lagt sölubann á verslunina Extrakaup við Grensásveg í Reykjavík og gert versluninni að farga öllum eintökum af tilteknum prinsessudúkkum og tuskudýri. Um er að ræða Önnu- og Elsu-dúkkur sem augljóslega eru eftirlíking af Frozen-systrunum í Disney-teiknimyndinni vinsælu, þó að Frozen-vörumerkið komi þar hvergi fram. Tuskudýrið er síðan hin heimsþekkta Hello Kitty.
Í úrskurðum Neytendastofu kemur fram að merkingum hafi verið ábótavant og gat verslunin ekki sýnt fram á að leikföngin væru framleidd samkvæmt kröfum um nauðsynlega öryggisstaðla á evrópska efnahagssvæðinu. Extrakaup svaraði ekki ítrekuðum erindum Neytendastofu vegna málsins sem komst að þeirri niðurstöðu að leggja bæri sölu- og afhendingarbann á leikföngin auk þess sem Extrakaupum bæri að eyða öllum eintökum vörunnar sem enn væru á vörulager fyrirtækisins.