WOW air flutti 212.611 farþega til og frá landinu í júlí eða um. Það eru 105 prósent fleiri farþegar en í júlí árið 2015. Sætanýting WOW air í júlí var 92 prósent en sætanýting í fyrra á sama tímabili var 89 prósent. Þetta er aukning um þrjú prósentustig þrátt fyrir mikla framboðsaukningu. Þetta segir fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Þar kemur sömuleiðis fram að sætanýting WOW air hafi aukist milli ára þrátt fyrir 102 prósent aukningu á sætaframboði í júlí. Framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 139 prósent í júlí frá því á sama tíma í fyrra.
Það sem af er árinu hefur WOW air flutt um 761 þúsund farþega en það er 109 prósent aukning farþega á sama tímabili frá árinu áður.
WOW air hóf áætlunarflug til Toronto og Montréal í Kanada í maí og flýgur þangað allan ársins hring. Samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu hefur mikil aukning átt sér stað í fjölda ferðamanna frá Kanada til Íslands.
Milli ára fjölgaði kanadískum ferðamönnum um 66 prósent í maí og um 106 prósent í júní. Í maí í fyrra komu 4.475 kanadískir ferðamenn til landsins en í ár voru þeir 7.421 og í júní í fyrra komu 6.355 en á sama tíma í ár komu 13.087.