Þetta er ellefta vél WOW air en fyrir lok árs 2017 verða þær orðnar 17
Nýjasta vél WOW air kemur til landsins í kvöld en um er að ræða glænýja flugvél af gerðinni Airbus A321. Flugvélin kemur beint frá verksmiðju Airbus í Hamborg og verður strax notuð í áætlunarflug. Vélin ber skráningarnúmerið TF-GPA sem stendur fyrir „Grandpa“ eða afi. Þetta segir í tilkynningu frá flugfélaginu.
„Við tökum spennt á móti þessari nýju viðbót í flota WOW air. Það er ánægjulegt að geta boðið farþegum okkar upp á að fljúga í glænýrri flugvél á jafn góðum kjörum og raun ber vitni,“ segir Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air.
Flugvélin er í langtímaleigu frá bandaríska félaginu Air Lease Corporation sem stýrt er af Steven Udvar-Házy. Í vélinni eru 220 sæti og kemur hún til með að fljúga innan Evrópu og á Austurströnd Bandaríkjanna.
Þetta er ellefta vél WOW air en samkvæmt tilkynningunni er stefnt að því að fyrir lok árs 2017 mun floti WOW air samanstanda af 17 nýjum Airbus flugvélum.
„Við tökum spennt á móti þessari nýju viðbót í flota WOW air. Það er ánægjulegt að geta boðið farþegum okkar upp á að fljúga í glænýrri flugvél á jafn góðum kjörum og raun ber vitni,“ segir Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air í tilkynningunni.