-
18. mars 2010
Öll vara og þjónusta er nú að jafnaði þriðjungi dýrari en í febrúar 2007, þegar allt lék í lyndi, og kaupmáttur hefur rýrnað hratt. Þess vegna hefur líklega aldrei verið mikilvægara að spara en einmitt nú. DV hefur tekið saman 22 leiðir til að skera niður útgjöld heimilisins.
Meira →
-
10. mars 2010
Neytendastofa hefur bannað American Express að birta auglýsingar þar sem segir að viðskiptavinir fyrirtækisins safni vildarpunktum tvöfalt hraðar en þeir sem skipti við VISA. Neytendastofa segir í ákvörðun sinni að fyrirtækið hafi ekki getað sannað þá fullyrðingu né heldur að „Með Premium Icelandair American Express færðu bestu ferðatryggingu sem völ er á.“
Meira →
-
7. mars 2010
Hefur þú keypt fullan poka af girnilegum ávöxtum sem reyndust síðan meira og minna óætir þegar heim var komið? DV leitaði til þekkingarfyrirtækisins Matís og til Banana ehf., eins stærsta innflutningsfyrirtækis landsins, og fékk upplýsingar um það hvernig velja skuli ávexti þannig að þeir séu bæði bragðgóðir og safaríkir. Einfaldasta reglan til að fá góða ávexti er að velja þá ávexti sem eru þyngri en þeir virðast vera.
Meira →
|
-
16. mars 2010
Þú getur ekki breytt fitu í vöðva, þú brennir ekki meira á morgnana og þú átt hvorki að sniðganga kolvetni í megrun né drekka átta glös af vatni á dag. DV fékk Ólaf Gunnar Sæmundsson, næringarfræðing við Háskólann í Reykjavík til að hrekja 26 algengar fullyrðingar um hreyfingu og mataræði sem eiga ekki við nein rök að styðjast.
Meira →
-
9. mars 2010
„Samtökin hvetja því fólk til að vera á varðbergi og vara eindregið við töku þessara lána. Þá lýsa samtökin undrun sinni á því að Hraðpeningum hafi tekist að safna hátt í 15.000 aðdáendum á Facebook, en samtökin hafa hingað til ekki heyrt frá aðdáendum okurlánastarfsemi af þessu tagi,“ segir á heimasíðu Neytendasamtakanna.
Meira →
-
7. mars 2010
Svokallaðir Blu-Ray spilarar kosta á bilinu 49.900 til 199.995 krónur samkvæmt verðkönnun Neytendasamtakanna. Blu-Ray er nýjasta kynslóð dvd-diska; þeir líta eins út en geta innihaldið margfallt meira gagnamagn en hefðbundnir dvd diskar.
Meira →
|
|
|
-
6. mars 2010
Varaðu þig á fæðubótarefnum sem auglýst eru sem allra meina bót. Risaskammtar af vítamíni gera líka takmarkað gagn og geta jafnvel verið hættulegir. Of stórir skammtar af A- og D-vítamínum geta meira að segja verið banvænir.
Meira →
-
4. mars 2010
„Svigrúm viðskiptabankanna til að laga skuldastöðu heimilanna er ótvírætt til staðar. Er verið að nota það svigrúm að fullu og er verið að nota það svigrúm á þann hátt að aukin jöfnuður verði meginforsenda þeirra aðgerða?“ spyr hagfræðingurinn Kjartan Broddi Bragason. Hann hefur unnið skýrslu fyrir samtökin um skuldastöðu íslenskra heimila.
Meira →
-
2. mars 2010
Neytendasamtökin könnuðu verð á sælgæti og drykkjarföngum í nokkrum leikhúsum og tónleikasölum. Gos í gleri er ódýrast í Háskólabíói og hjá Leikfélagi Akureyrar. Þar kostar flaskan 250 krónur en hún kostar 400 krónur í Borgarleikhúsinu. Bjórflaska er einnig ódýrust hjá Leikfélagi Akureyrar, kostar 650 krónur. Hún er dýrust í Borgarleikhúsinu og kostar 850 krónur.
Meira →
-
1. mars 2010
Fimmtán þúsund einstaklingar og fyrirtæki hafa nýtt sér þau úrræði sem Íslandsbanki hefur boðið viðskiptavinum sínum í greiðsluerfiðleikum, samkvæmt tilkynningu frá Má Mássyni, upplýsingafulltrúa bankans.
Meira →
-
26. febrúar 2010
Undraefnið WD-40 smyr alla hluti, kemur í veg fyrir ryðmyndun og tæringu og þrífur bókstaflega allt milli himins og jarðar. Sumir nota efnið meira að segja gegn liðagigt en aðrir láta nægja að nota það sem hreinsiefni fyrir bílinn eða heimilið. Hér eru taldar upp 100 aðstæður þar sem WD-40 getur komið að gagni. DV tekur ekki ábyrgð á því að efnið virki við þær allar eins og til er ætlast.
Meira →
|
-
5. mars 2010
Neytendasamtökin ráðleggja fólki að setja fyrirvara við afborganir af myntkörfulánum, sem héraðsdómur dæmdi á dögunum að væru ólögleg. Áður en niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir ætti fólk sem hyggst nýta sér myntbreytingu, frystingu eða höfuðstólslækkun lána að setja fyrirvara þegar afborganir eru greiddar.
Meira →
-
3. mars 2010
Bananar, rúsínur og harðfiskur eru dæmi um skyndibita sem uppfyllir bæði þau skilyrði að vera ákaflega ríkur af mikilvægum næringarefnum og afar handhægur. DV naut tók saman tíu heilsusamleg matvæli sem borða má hvenær sem er í amstri dagsins. Blaðið naut aðstoðar næringarfræðinga við hvaða efni er að finna í matnum og hvaða áhrif þau geta haft á líkamann.
Meira →
-
2. mars 2010
„Ég myndi setja helminginn inn á höfuðstól lána, ef ég væri með lán, en hinn helminginn myndi ég setja í ríkisskuldabréf,“ segir fjármálaráðgjafinn Ingólfur H. Ingólfsson hjá Spara.is, spurður hvar hann myndi sjálfur leggja inn spariféð sitt, ef hann ætti milljón aflögu.
Meira →
-
27. febrúar 2010
Meðalmaður, sem ekur 18 þúsund kílómetra á ári á bíl sem eyðir 10 lítrum á hundraðið, getur gert ráð fyrir því að þurfa að borga nærri 370 þúsund krónur í bensín á þessu ári. Bensínið fór í fyrsta sinn yfir 200 krónur þegar N1 tilkynnti um fimm króna hækkun á bensín- og dísilolíulítranum á mánudaginn. Lítrinn kostar nú 204,20 krónur. Að fylla einn 50 lítra tank kostar því 10.200 krónur.
Meira →
-
25. febrúar 2010
Gott er að nota matarsóda og volgt vatn til að þrífa innan úr ísskápnum og frystihólfinu. Takið úr sambandi og stingið hárblásara í samband í staðinn. Notið hann til að flýta fyrir en gætið þess að blása ekki lengi á plast. Ef ekki stendur til að nota ísskápinn um hríð er gott að geyma skál með kattasandi eða viðarkolum inni í ísskápnum. Það eyðir ólykt.
Meira →
Fréttasafn »
|