Guðjón Valur sannar það enn og aftur að hann er einn fremsti handknattleiksmaður í heimi.

Guðjón Valur og Aron í sérflokki

06:00 › 8. ágúst 2012

Guðjón Valur Sigurðsson og Aron Pálmarsson hafa samtals skorað 66 af 167 mörkum íslenska handbolta­landsliðsins á Ólympíu­leikun­um í London það sem af er. Guðjón Valur sýnir enn og sannar að hann er einn allra besti handboltamaður í veröldinni en hann leiðir tölfræðiflokka bæði í vörn og sókn. Hann er markahæsti maður mótsins í riðlakeppninni með 36 mörk í leikjunum fimm.

Mörkin hefur hann skorað úr 55 skotum sem gerir 65 prósenta skotnýtingu. Guðjón Valur hefur að auki gefið 6 stoðsendingar og því átt þátt í 42 mörkum Íslands. Aron Pálmarsson hefur aftur á móti gefið 18 stoðsendingar og því komið að 48 mörkum Íslendinga en hinn ungi Hafnfirðingur hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir vasklega framgöngu sína með liðinu á mótinu það sem af er. Flestir þeir sem eru á listum yfir markahæstu menn eru vítaskyttur sinna liða en það er ekki tilfellið hjá Íslendingunum tveimur.

DV rýndi í opinbera tölfræði Ólympíuleikanna það sem af er. Í ljós kom að nöfn Guðjóns Vals og Arons koma ítrekað upp. Þeir eru í sérflokki á báðum endum vallarins í rauninni. Áskrifendur geta lesið meira um framgöngu Strákanna okkar hér að neðan.