
Sætur sigur á Svíum
22:10 › 2. ágúst 2012Íslenska karlalandsliðið í handknattleik vann sætan sigur á Svíum á Ólympíuleikunum í kvöld 33-32. Ísland er þar með fullt hús stiga eftir þrjá leiki í A-riðli líkt og Frakkar en næsti leikur liðsins er gegn því franska á laugardag.
Svíarnir byrjuðu leikinn betur en Íslendingar sigldu fram úr þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður. Í upphafi seinni hálfleik virtust Íslendingar vera að stinga Svíana af þegar þeir komust í sjö marka forystu en Svíarnir neituðu að gefast upp.
Leikurinn var æsispennandi undir lokin en íslenska liðið náði að hafa sigur undir lokinn eftir að hafa verið með forystu meirihlutann af leiknum. Spilaði vörn Íslendinga þar stóran þátt ásamt frábærum sóknarleik. Atkvæðamestir í liði Íslendinga í leiknum voru Aron Pálmarsson með níu mörk úr þrettán skotum og Guðjón Valur Sigurðsson með sjö mörk úr ellefu skotum.
