Lars Lagerbäck stýrir liðinu gegn Færeyjum á miðvikudag.

Þú getur spurt landsliðsþjálfarann

16:48 › 10. ágúst 2012

Íslenska landsliðið í knattspyrnu leikur æfingaleik við Færeyinga á Laugardalsvelli á miðvikudaginn næstkomandi. Leikurinn hefst klukkan 19:45 Um er að ræða síðasta leik liðsins fyrir undankeppni HM sem hefst með heimaleik gegn Noregi 7. september.

Lesendum DV.is gefst á sunnudaginn tækifæri til að spyrja Lars Lägerback landsliðsþjálfara um málefni landsliðsins á Beinni línu hér á DV.is á sunnudag.

Lars, sem tók við lðinu síðastliðið haust, er á meðal reyndustu landsliðsþjálfara Evrópu. Hann stýrði sænska landsliðinu inn á fimm stórmót í röð en liðið þjálfaði hann á árunum 1998 til 2009. Hann sagði starfi sínu lausu eftir að sænska liðinu mistókst að komast í lokakeppni HM í Suður-Afríku 2010.

Allir sterkustu knattspyrnumenn Íslands, ef frá er talinn Björn Bergmann Sigurðsson, gefa kost á sér í leikinn gegn Færeyingum, en nokkuð er um liðið frá því það gerðist síðast. Lars hefur haft orð á því að mikill hugur sé í leikmönnum liðsins og að hann sé ánægður með það sem hann hefur séð til þeirra, bæði á æfingum og í æfingaleikjum frá því hann tók við liðinu.

Eins og áður sagði mætir Lars á Beina línu á sunnudaginn. Honum til halds og trausts verður Heimir Hallgrímsson aðstoðarþjálfari. Lesendur eru þess vegna hvattir til að senda inn spurningar á íslensku. Þeim verður svarað á íslensku.

Hópurinn sem mætir Færeyjum:

Markmenn:

Gunnleifur Gunnleifsson - FH

Hannes Þór Halldórsson - KR

Ingvar Jónsson - Stjarnan

Varnarmenn:

Ragnar Sigurðsson - FC Kaupmannahöfn

Sölvi Geir Ottesen Jónsson - FC Kaupmannahöfn

Ari Freyr Skúlason - Sundsvall

Indriði Sigurðsson - Viking

Kári Árnason - Rotherham

Birkir Már Sævarsson - Brann

Bjarni Ólafur Eiríksson - Stabæk

Grétar Rafn Steinsson - án félags

Miðjumenn:

Aron Einar Gunnarsson - Cardiff

Helgi Valur Daníelsson - AIK

Emil Hallfreðsson - Hellas Verona

Jóhann Berg Guðmundsson - AZ Alkmaar

Rúrik Gíslason - OB

Eggert Gunnþór Jónsson - Wolves

Arnór Smárason - Esbjerg

Sóknarmenn:

Birkir Bjarnason - Pescara

Kolbeinn Sigþórsson - Ajax

Alfreð Finnbogason - Helsingborg

Gylfi Þór Sigurðsson - Tottenham

Eiður Smári Guðjohsnen - án félags

Leikir Íslands í undankeppni HM:

2012

7. september Ísland - Noregur

11. september Kýpur - Ísland

12. október Albanía - Ísland

16. október Ísland - Sviss

2013

22. mars Slóvenía - Ísland

7. júní Ísland - Slóvenía

6. september Sviss - Ísland

10. september Ísland - Albanía

11. október Ísland - Kýpur

15. október Noregur - Ísland