
Tignarleg upphitun hlaupara slær í gegn
08:10 › 20. júlí 2012Michelle Jenneke hefur aukið áhuga íþróttaunnenda á grindahlaupi. Þessi ástralska afrekskona stal svo sannarlega senunni á heimsmeistaramóti ungmenna um síðastliðna helgi í Barcelona, á Spáni.
Hún stakk keppendur sína af í undanriðli í hundrað metra grindahlaupi og varð í fimmta sæti í úrslitunum. Það var þó ekki bara hlaupið sem vakti athygli heldur þykir upphitun hennar afar glæsileg.
Það hreint út sagt geislar af henni á meðan hún gerir sig klára fyrir hlaupið og virðist hún skemmta sér afar vel. Hún hristir alla skanka og sveiflar mjöðmunum afar tignarlega.
Upprunalega birti íþróttabloggið With Leather myndband af upphitun íþróttakonunnar en stjórnendur bloggsins hlutu miklar skammir fyrir að kynvæða þessa nítján ára gamla stúlku.
