Kevin Durant verður líklegast á bekknum

10:00 › 18. júlí 2012

Bandaríska landsliðið í körfuknattleik er nú statt í Manchester á Englandi þar sem það undirbýr sig fyrir Ólympíuleikana í London. Liðið hefur leikið tvo leiki og á eftir að leika þrjá til viðbótar. Á fimmtudag lék liðið gegn landsliði Dóminíska lýðveldisins og hafði þar mjög auðveldan sigur, 113-59. Þá mætti liðið brasilíska landsliðinu sem það vann með 80 stigum gegn 69.

Þó svo að ekki hafi reynt mikið á liðið þá gaf það vísbendingar um hugsanlegt byrjunarlið á Ólympíuleikunum.

Jason Schumann veltir fyrir sér mögulegu byrjunarliði á NBA.com og segir þjálfara liðsins ætla að stilla upp fremur „lágvöxnu“-liði.

Það sem kemur kannski mest á óvart er að Kevin Durant verður líklegast á bekknum. Það er kannski eðlilegt þegar litið er til samkeppninnar en hann þarf að berjast við Carmelo Anthony, LeBron James og Kobe Bryant um byrjunarliðssæti.

Talið er að byrjunarliðið muni líta svona út: Chris Paul leikstjórnandi, Kobe Bryant skotbakvörður, LeBron James framherji, Carmelo Anthony kraftframherji og Tyson Chandler miðherji.

Talið er að Kevin Durant mun væntanlega vera fyrsti kostur af bekknum. Hann er einn af allra bestu skorurum NBA-deildarinnar en það sem vekur mesta athygli er að hann er talinn eiga eftir að leysa stöðu miðherja þegar kemur að varnarleiknum.

Leikstjórnandinn Deron Williams mun væntanlega leysa Chris Paul af en hann þarf að keppa við annan frábæran leikmann um stöðu í liðinu, Russell Westbrook.

Það hefur einnig komið á óvart hversu lítinn leiktíma Kevin Love hefur fengið í æfingarleikjunum. Hann hefur reyndar verið ískaldur í skotunum en engu að síður þá ætti hann, sökum stærðar og getu, að fá meiri leiktíma því hann er nánast sá eini í liðinu sem kemur til greina til að leysa Tyson Chandler af í miðherjastöðunni, ef allt væri eðlilegt það er að segja.

Þá þykir líklegt að James Harden muni ekki koma mikið við sögu í leikjunum á Ólympíuleikunum ásamt nýliðanum Anthony Davis