
Maradona rekinn
09:03 › 11. júlí 2012Fótboltagoðsögnin Diego Maradona var í dag rekinn sem þjálfari liðsins Al Wasl í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Eitt ár var eftir af samningi liðsins við Maradona. Ástæðan fyrir brottvikningunni ku vera lakt gengi liðsins en það hafnaði í áttunda sæti af tólf í deildarkeppni.
Miklar væntingar voru um frammistöðu Maradona þegar hann var ráðinn sem þjálfari liðsins í maí á síðasta ári. En liðið var samt við sig og gengi þess enn slæmt.
En þjálfarinn þvertekur fyrir að hafa borið ábyrgð á slæmu gengi liðsins og sagðist hafa gert sitt besta með þá leikmenn sem að hann hafði.
