Alba fagnaði ákaft þegar hann skoraði í leiknum.

Titilvörninni lokið: Spánverjar burstuðu Ítali

20:41 › 1. júlí 2012

Spánverjar burstuðu Ítali með fjórum mörkum gegn engu í úrslitaleik Evrópumeistaramótsins í knattspyrnu í Úkraínu í kvöld. Spánverjar urðu fyrsta þjóðin til að sigra þrjú alþjóðleg risamót í kvöld þegar þeir vörðu Evrópumeistaratitilinn með tilþrifum í kvöld.

Það voru þeir David Silva, Jordi Alba, Fernando Torres og Juan Mata sem skoruðu mörk Spánverja í leiknum. Sigur Spánverja var aldrei í hættu en þeir skoruðu sitt fyrsta mark á fjórtándu mínútu leiksins. Tvö markanna komu í fyrri hálfleik og var sigurinn síðan innsiglaður í þeim síðari.