
EM: Segir Ítali hafa getu til að sigra Spán
17:20 › 30. júní 2012Ítalska landsliðið í knattspyrnu er síður en svo heimsþekkt fyrir áberandi sóknarknattspyrnu heldur þvert á móti. Það verður hins vegar sókndjarft ítalskt landslið sem tekst á við ríkjandi Evrópumeistara Spánverja í úrslitaleik Evrópumótsins í knattspyrnu á morgun ef marka má þjálfara liðsins.
Cesare Prandelli, þjálfari Ítalíu, er þess fullviss að hann sé með nógu góðu leikmenn í liði sínu fyrir úrslitaleikinn til að stöðva eiturhraðan sóknarbolta spænska landsliðsins. Engu landsliði hefur í raun tekist að finna svör við hraðspili þeirra spænsku um tæplega fimm ára skeið og verður því fróðlegt að vita hvað Prandelli hefur í huga til að bæta þar úr.
Í það allra minnsta segir Prandelli við fréttastofu Reuters ætti ítalska liðið að geta velgt þeim spænsku vel undir uggum og getur hann bakkað það upp með því að benda á síðasta leik liðsins við Þýskaland. Þar komu þeir ítölsku verulega á óvart með sigri og ekki síður að sækja tiltölulega grimmt allan leikinn og halda því áfram þrátt fyrir að vera komnir með tveggja marka forystu.
„Við ætlum að loka svæðum á miðjunni gegn Spáni og vinna boltann með pressu á því svæði. Fókusinn okkar er algjörlega á því svæði og ef okkur tekst það skapast færi að sjálfu sér fram á við.“
Prandelli bætti þó við að hann hefði afskaplega gaman af leik spænska landsliðsins og að liðið verðskuldaði alla þá titla sem Spánn hefði unnið undanfarin ár.
