Gylfi Þór Sigurðsson.

Knattspyrnustjóri Liverpool vill fá Gylfa

23:21 › 2. júní 2012

Brendan Rodgers, hinn nýráðni knattspyrnustjóri Liverpool, hefur áhuga á því að fá Gylfa Þór Sigurðsson, leikmann Hoffenheim í Þýskalandi, til að spila fyrir liðið samkvæmt heimildum The Mirror.

Rodgers stjórnaði Swansea City og fékk Gylfa lánaðan til félagsins í janúar síðastliðnum en hann skoraði sjö mörk í sautján leikjum og var valinn leikmaður mánaðarins í mars. Enskir miðlar greindu frá því að Hoffenheim og Swansea hefðu komist að samkomulagi um kaupverð fyrir leikmanninn en svo tók Rodgers við Liverpool.

Rodgers var nefnilega ástæða þess að Gylfi ákvað að fara til Swansea til að byrja með en því virðist sem svo að Gylfi fari ekki til Swansea. Rodgers vill þó fá hann til Liverpool. „Þegar ég talaði við Huw Jenkins um daginn, formann félagsins, eftir að ég sagði honum að ég væri að fara til Liverpool, þá lét ég hann vita að ég myndi ekki taka leikmenn frá klúbbnum. Ég stend enn við þau orð en Gylfi kom til Swansea af því að ég var knattspyrnustjóri liðsins.“ sagði Rodgers í viðtali við The Mirror.

„Í rauninni ýtti ég á Swansea til þess að fá þau félagaskipti í gegn og þau fóru fram að lokum hvað varðar kaupverðið og launin. En núna er þetta undir Gylfa komið.“