Thunder vann fyrsta leikinn gegn Heat

09:43 › 13. júní 2012

Oklahoma City Thunder sigraði Miami Heat með 105 stigum gegn 94 í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. Kevin Durant var stigahæstur Thunder með 36 stig en Russel Westbrook skoraði 27 stig fyrir liðið og spilaði heilt yfir mjög vel.

Munaði þar mestu um hversu vel hann fór með boltann því hann missti boltann aðeins tvisvar í leiknum í nótt, sem verður að teljast viðunandi árangur.

Það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki verður NBA-meistari en sagan sýnir að 72,7 prósent þeirra liða sem vinna fyrsta leikinn standa uppi sem NBA-meistarar.