Enn eru töfrar í takkaskóm hins 35 ára gamla Shevchenko.

Þjóðhetjan Shevchenko saltaði Svía

20:43 › 11. júní 2012

Gestgjafarnir í Úkraínu eru óvænt í efsta sæti D-riðils að lokinni fyrstu umferð eftir góðan 2-1 sigur á Svíþjóð í kvöld. Það var þjóðhetjan Andriy Shevchenko sem sá um sænsku gestina og tryggði Úkraínu fyrsta sigur þjóðarinnar í lokakeppni EM frá upphafi.

Fyrri hálfleikur var markalaus en það er óhætt að segja að sá síðari hafi byrjað líflega.

Það var sjálfur Zlatan Ibrahimovic sem kom þó Svíum yfir á 52. mínútu. Zlatan skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf Kim Källström.

Þremur mínútum síðar hafði Shevchenko jafnað metin og á 61. mínútu skoraði hann markið sem reyndist sigurmarkið.

Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út meðal Úkraínumanna þegar hinn tyrkneski dómari leiksins Cüneyt Cakir flautaði til leiksloka.

Draumabyrjun hjá heimamönnum en Svíar sitja eftir með sárt ennið. Úkraína og Svíþjóð eru í riðli með Englandi og Frakklandi sem gerðu 1-1 jafntefli fyrr í dag.