
Hollusta framyfir peninga
10:26 › 28. maí 2012Varnarjaxlinn Carles Puyol hefur hafnað tveimur vænlegum tilboðum frá Rússlandi og Sameinuðu arabísku furstadæmunum og ætlar sér að leika með sínu Barcelóna liði til enda ferilsins.
Puyol, sem er 34 ára gamall, á eitt ár eftir af samningi sínum við Barcelóna en ýmsir telja að þó óvíða finnist meiri baráttuandi en í Puyol sé hann þegar orðinn einn af veikustu hlekkjum í firnasterku liði sínu.
Spænska dagblaðið El Mundo Deportivo fullyrðir þó að karlinn hafi alfarið hafnað tveimur tilboðum þar sem mun meiri peningar voru í boði en hann fær greitt hjá Barcelóna.
