
Bóndi eyðilagði 8 lögreglubíla til að mótmæla handtöku
17:56 › 3. ágúst 2012Bandarískur bóndi var ekki sáttur við afskipti lögreglunnar af sér. Bóndinn Robert Pion ákvað því að aka traktor sínum yfir átta kyrrstæða lögreglubíla fyrir utan lögreglustöðina í Newport, í Vermont í Bandaríkjunum, til að mótmæla aðgerðum lögreglunnar gegn sér.
Talið er að lögreglan hafi handtekið bóndann vegna fíkniefnavörslu.
Eftir að hafa eyðilagt þessa átta lögreglubíla á traktornum gat lögreglan ekki veitt bóndanum eftirför sökum þess að allir bílar lögregluliðsins voru óökuhæfir. Lögreglan hafði þó að lokum hendur í hári Prion.
