
Piers Morgan kallar Akin huglausan skíthæl
08:54 › 21. ágúst 2012Sjónvarpsmaðurinn Piers Morgan var allt annað en sáttur með það þegar bandaríski þingmaðurinn Todd Akin mætti ekki í þátt hans á CNN í gærkvöldi.
Akin hafði boðað komu sína í þáttinn Piers Morgan Tonight, en hann fer víða þessa dagana til að verja forkastanleg ummæli sín um fóstureyðingar og nauðganir á dögunum. Akin mætti hins vegar ekki og varð Morgan því að sýna, í beinni útsendingu, myndir af tómum svörtum stól þar sem repúblikaninn átti að sitja í settinu hjá honum. Akin er í framboði til öldungadeildar fyrir repúblikanaflokkinn en ummæli hans í viðtali á dögunum gerðu allt vitlaust Vestanhafs.
Og Morgan lét sína skoðun í ljós.
„Þingmaður, þér er velkomið að setjast í stólinn hérna hvenær sem þér hentar svo þú getir efnt loforð þitt um að mæta í þáttinn. Ef þú gerir það ekki ertu, eins og við segjum í Bretlandi: Huglaus skíthæll.“
Hvað gerði Akin? Sjáðu makalaus ummæli þingmannsins hér.
