
Handtekin fyrir þjófnað á sleipiefni og ósæmilega hegðun í Walmart
21:38 › 1. ágúst 2012Miðað við þann fjölda sem gerir sér ferð í Walmart-verslanir víðsvegar um Bandaríkin þarf ekki að koma á óvart að þar gerist ótrúlegustu hlutir. Starfsmenn hafa orðið vitni að fæðingum, brúðkaupum og dauðsföllum.
Julian R. Call, 22 ára, og Tina F. Gianakon, 35 ára, voru handtekin á sunnudag eftir að hafa stolið sleipiefni og hagað sér ósæmilega fyrir framan viðskiptavini verslunar Walmart í Hutchinson, í Kansas í Bandaríkjunum.
Lögregla segir Call hafa káfað á Gianakon fyrir framan viðskiptavini verslunarinnar en ekki er vitað hvort að sleipiefnið kom þar við sögu.
Þetta er þó ekki í fyrsta skiptið sem álíka uppákomu hefur átt sér stað í Walmart. Í febrúar í fyrra var framhaldskólakennari sakaður um að hafa haft samræði við nemanda á bílastæði verslunarinnar í Pennsylvaníu. Árið 2009 voru 83 ára gamall maður og 25 ára gömul kona handtekin fyrir að stunda kynlíf í Buick-bifreið fyrir utan Walmart í Norður-Kaliforníu.
