David Price.

Heimilislaus maður dvaldi á lúxushótelum í tvö ár

09:58 › 4. júlí 2012

Þeir sem heimilislausir eru þurfa oftast nær að sofa undir berum himni eða í skýlum en David Price kaus að gista á lúxushótelum í Flórída. Hann gisti á The Ritz Carlton, Hard Rock Hotel og The Loews Portofiono Bay. Samkvæmt lögreglunni í Orlando þá gisti hann á fleiri hótelum án þess að greiða fyrir það.

Bandaríska sjónvarpsstöðin WFTV greinir frá því að Price hefði laumast inn á hótelherbergi, eftir að gestir höfðu skráð sig út af hótelinu, og tilkynnt hótelstjórninni að þeir ætluðu sér að framlengja dvölina á hótelinu. Hann setti allan kostnað á kreditkort þeirra sem höfðu bókað herbergin fyrir.

Þessi þrjátíu ára gamli maður er grunaður um að hafa eytt níu þúsund dölum, sem nemur um 1,4 milljónum króna, af kreditkorti manns sem dvaldi á Portofino Bay-hótelinu í Orlando, í Bandaríkjunum.

„Ég veit ekki hvernig hann komst inn á hótelið, eða hvernig hann komst yfir kortið mitt, en hann keypti dýrustu vínin, fór á flottustu veitingahúsin, og pantaði herbergisþjónustu,“ sagði fórnarlambið Joseph Barak við bandarísku sjónvarpsstöðina Local 10.

Price var handtekinn á föstudag eftir að hafa reynt að framlengja dvöl hótelstarfsmanns.