Hinn óþekkti strætósætisskemmdarvargur sést hér skola niður einum bita með svalandi gosdrykk. Klárlega furðulegasta máltíð dagsins.

Strætósætisætu leitað

12:59 › 30. júlí 2012

Lögreglan í Devon í Bretlandi leitar nú að manni sem sást á öryggismyndavél strætisvagns við býsna undarlegt athæfi. Maðurinn stórskemmdi nefnilega sæti í strætisvagninum með því að leggja sér hluta þess til munns.

Eftir að hafa verið um tuttugu mínútur um borð í vagninum sést hvar maðurinn byrjar að borða sætið og tekur hann sér meira að segja pásu til að skola hinni undarlegu máltíð niður með gosdrykk.

Lögreglan birti mynd af skemmdarvarginum og sendi fjölmiðlum í von um að hafa uppi á honum en tjónið á sætinu er metið á um 200 pund, eða sem nemur tæplega 40 þúsund krónum íslenskum.

„Þetta er augljóslega ekki alvarlegasta málið sem komið hefur upp hjá okkur með tilliti til umfangs skemmda en þetta er vissulega furðulegt,“ segir talsmaður strætisvagnafyrirtækisins Stagecoach í samtali við Daily Mail.

Kaldhæðnin er auðvitað sú að neysla matar og drykkjar um borð í vögnum Stagecoach er með öllu bönnuð.