Svokallaðir „hvatningarfyrirlesarar“ eins og Tony Robbins velta milljörðum árlega.

20 manns með brunasár eftir kolagöngu

18:18 › 21. júlí 2012

Um 20 manns þurftu aðhlynningu vegna brunasára í San José í Kaliforníu í gær. Fólkið hafði tekið þátt í námskeiði fyrirlesarans Tony Robbins en liður í því var að ganga á glóandi kolum. Flestir hlutu annars eða þriðja stigs brunasár. Meira en 6000 manns mættu á námsskeiðið, sem ber nafnið Unleash the Power Within eða Leystu þína innri orku úr læðingi.

Skipuleggjendur námskeiðsins höfðu fengið leyfi frá slökkviliðsyfirvöldum en hjúkralið var á vettvangi ásamt slökkviliðsmönnum sem gengu úr skugga um að enginn eldur myndi breiðast út.

Vitni sagðist í samtali við San José Mercury News hafa heyrt angistaróp þátttakenda. „Fólk var í sársauka, eins og það væri verið að pynda þau,“ sagði hann. „Fyrst gekk einn af stað, síðan nokkrum mínútum seinna fór annar en það var röð af fólki að ganga á kolunum. Það var hreint út sagt stórskrýtið.“

Fyrirtæki Tony Robbins, Robbins Research International, hefur gefið út tilkynningu þar sem segir: „Við höfum boðið upp á þessa upplifun á öruggan hátt í meira en þrjá áratugi, og alltaf undir umsjón sjúkraliðs. Við munum halda áfram að starfa með slökkvi- og sjúkraliði á svæðinu til að ganga úr skugga um að þessi atburður fari alltaf fram á sem öruggastan máta.“

Einn maður sem gekk á kolunum sagði að menn þyrftu að vera í réttu hugarástandi til að brenna sig ekki. Önnur kona sagði að henni fyndist það undarlegt að svo margir hefðu slasað sig en hún sagðist hafa tekið nokkrum sinnum þátt í kolagöngum.

David Willey, eðlisfræðikennari við Pittsburgh-háskóla hefur fjallað um eðlisfræðina sem felst í kolagöngum. Hann segir að „rétt hugarástand“ sé ekki hluti af því að brenna ekki, hins vegar skipti t.d. varmarýmd og eðlisleiðni kolanna máli. Talsmaður slökkviliðsins í San José segist ekki mæla með því að fólk gangi á glóandi kolum.