
Málaði sig sem Hulk - Náði ekki málningunni af
23:25 › 30. maí 2012Eftir að hafa málað sig grænan til þess að líkjast teiknimyndafígúrunni Hulk komst Brasilíubúi að því, sér til mikillar skelfingar, að hann náði ekki málningunni af.
Paulo Henrique do Santos, frá Vila Cruzeiro, komst að því að hann hafði notað málningu sem notuð er á eldflaugar og kjarnorkukafbáta.
Samkvæmt frétt brasilíska fjölmiðilsins Extra.globo.com þá ætlaði Paulo að kaupa málningu sem hann hafði áður notað en hún var uppseld og notaði hann því fyrrnefnda iðnaðarmálningu. Í von um að ná málningu af húðinni fór hann í um tuttugu sturtuferðir.
Eftir að hópur vina hans og nágranna höfðu skrúbbað hann í sólarhring náðist málning loks af. Hann óttast blýeitrun sökum iðnaðarmálningarinnar en virðist ekki vera með einkenni hennar að svo stöddu.
Þessi 35 ára gamli maður starfar einnig sem plötusnúður í Rio de Janeiro og er þekktur sem MC Marronzinho. Myndir af honum grænum hafa farið víða um netheima og er hann orðinn þekktur á sínu heimasvæði.
.
