
Hljómfagrir Íslendingar sungu karókí í almenningsgarði
15:13 › 29. maí 2012Myndband þar sem þeir Pétur Oddbergur Heimisson, Bjarni Guðmundsson og Þorsteinn Freyr Sigurðsson syngja karókí í almenningsgarðinum, Mauerpark, í Berlín hefur vakið mikla lukku. Þar syngja þeir lag Elvis Presley, „Can‘t help falling in love,“ við góðar undirtektir og fögnuð áhorfenda. Piltarnir munu hafa verið að taka þátt í karókí keppni og þrátt fyrir ósk um aukalag afþakka þremenningarnir það.
Keppnin er haldin reglulega í Mauerpark og standa að henni þrír írskir vinir. Fjölmargir leggja leið sína í Mauerpark til að hlusta á keppnina.
Í meðfylgjandi myndbandi má sjá strákana taka lagið.
