Áttræð og dauðhrædd í fallhlífastökki

13:32 › 27. maí 2012

Betur fór en áhorfðist þegar þessi áttræða bandaríska kona skellti sér í fallhlífastökk á dögunum.

Konan, sem heitir Laverne, missti kjarkinn rétt áður en hún átti að hoppa út úr flugvélinni og kallaði „nei- nei!“ um það bil sem leiðbeinandinn ýtti henni út. Eftir það fór allt úrskeiðis sem heitið gat.

Laverne losnaði úr beltinu sem festi hana við leiðbeinandann og rann því niður í miklu óöryggi. Eins og sést í myndbandinu er hún orðin ansi klæðalítil.

Myndbandið er svo tekið af þriðja aðila sem reynir að aðstoða leiðbeinandann og Laverne, áður en eitthvað skelfilegt gerist.

Sem betur fer ná þau að halda sér fast, leiðbeinandinn og Laverne og opna fallhlífina.

Ljóst er að þetta hefði getað farið svo miklu verr. Laverne var kominn úr beltinu og í myndbandinu sést hvernig leiðbeinandinn heldur dauðahaldi í hana. Talið er að óhappið megi rekja til þess óöryggis sem Laverne fann fyrir áður en þau stukku, en hún ríghélt sér í flugvélina og vildi alls ekki stökkva.

Laverne segist í upphafi myndbandsins hafa óskað sér að fara í fallhlífastökk í mörg herrans ár og því fóru vinkonur hennar með henni.

Daily Mail greinir frá og Ekstrabladet